sunnudagur, mars 04, 2007

Ég raula raunakvæði...

Nú er illt í efni. Ég er með einkirningssótt. Er þó ekki dauðvona, æli hvorki blóði, lifri né lungum heldur er með heiftarlega hálsbólgu og bólgið milta og lifur. Lá meira að segja heila nótt á FSA með næringu í æð og tilheyrandi. Nú á ég að liggja heima heima í viku og bryðja bólgueyðandi. Það er ömurlegt. Fæ ekki einu sinni að fara í skólann í heila viku eða hreyfa mig að ráði í mánuð. Annars gæti ég endað í endurhæfingu inni á Reykjalundi, sagði doktorinn mér. Veikin er þó ekki bráðsmitandi, nema þá helst einhver vilji blanda við mig munnvatni. En það er náttúrulega viðbjóðslegt svo það er engin hætta á því...

Nú sit ég því hér á Dalvík með skeifu niður á mjaðmir og hálfpartinn kvíði fyrir komandi tíðum. Ekki nóg með að ég hafi misst af Gettu Betur-keppninni og skíðaferð með MR-ingum. Svo ég tali nú ekki um ræðukeppnina sem ég tók ekki þátt í sökum veikinda. Já, það blæs ekki byrlega fyrir Elíassyni þessa dagana. En þetta jafnar sig fyrir rest. "Grær áður en ég gifti mig", eins og afi segir alltaf.

En ætli ég endist nokkuð hér heima á Dalvík út vikuna, onei. Ég sé til hvað ég geri. Bara hvað sem þið gerið, ekki blanda við mig með munnvatni, nema þið viljið fá einkirningssótt...

...hef reyndar heyrt að sóttin sé aðalpartýtrikkið þessa dagana, þannig að...