föstudagur, desember 28, 2007

Haldið út í heim

Á nýju ári leggja í ‘ann ferðalangar tveir,
um lönd með fúlan daun og ferska angan.
Á vegi verða fjöll og dalir, firðir, sykurreyr,
feigir hundar, helgar kýr og menn með aga strangan.

Með bakpokana burðast yfir vegleysur og leir,
á baki á kameldýri langt frá þéttbýlisins ys.
Lesa má af villum vega, mafíu og fleir
á vefsíðunni reisubok (.) blogg punktur is.

Nú styttist óðum í ferðina miklu yfir hafið. Af því tilefni höfum við Kristín opnað nýja bloggsíðu á vefslóðinni www.reisubok.blogg.is.

Þá ætla ég hér með að loka þessu vefsetri tímabundið eða ótímabundið - er ekki viss hvort verður.

Takk fyrir mig í bili.

miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Af mannvitsbrekkum...

Eftirfarandi klausa birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni Enn er þróunarkenningin ósönnuð:

„Guðfinna S. Bjarnadóttir segir í Lesbók Morgunblaðsins hinn 3. nóv. sl.: „Þróunarkenningin tilheyrir vísindum og sköpunarkenningin trúarbrögðum.“ Ég vil benda á að enn er ekki vitað til að ein tegund hafi breyst í aðra, ekki hefur heldur milliliðurinn milli apa og manna fundist. Kenning þróunarsinna í sambandi við þroska mannsfóstursins hefur reynst algert rugl. Þeir segja t.d. í Frumlífssögunni, bls. 98 - 99, að sex mánaða gamalt mannsfóstur líkist fiski meir en manni! Getur þetta talist til vísinda?
mm Einhver spyr kannski, fara trú (kristin trú) og vísindi saman? Þessu svara ég hiklaust játandi og hér koma rökin beint frá Guðs orði, orði sannleikans. Jesús Kristur er höfundur trúarinnar (Heb. 12:2). Jesús Kristur er einnig höfundur allra vísinda, samkvæmt því sem stendur í Kólossubréfi 2:3: „En í honum (Jesú Kristi) eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir.“
mm Kveðjur og blessunaróskir.“

Ætli guð hafi þá ekki líka hrist jörðina (og sjálfsagt alheiminn allan) fram úr annarri erminni fyrir um fimmþúsund árum síðan.

Mér fallast hendur.

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Af kökubakstri.

Við Kristín erum feikidugleg. Nú þegar búin að baka tvær smákökusortir: mömmukossa og hermanns - mæðrum okkar beggja til ómældrar ánægju. Fyrri tegundina þekkja flestir en þá síðari má finna í kökubók Hagkaupa. Að sjálfsögðu var kryddmagnið í þeirri aukið og súkkulaði bætt í. Og ekki þýðir að slá slöku við enda bíða nú allavega þrjár sotrir til viðbótar lögunar og bökunar og vinnist tími til er aldrei að vita nema soðið verði súkkulaði í nokkra konfektmola.

Ástæða þessarar ótrúlegu fyrirhuggju er tilhlökkun eftir jólunum. Síðastliðin fjögur ár hef ég vart haft tíma til þess að hlakka til jólanna og nú í tóminu eftir vinnu leitar hugurinn að einhverju til að hugsa um og vinna að. Ég vona að við höfum bara ekki byrjað of snemma og fáum ógeð á tilstandinu.

Þá vil ég taka undir með menntamálaráðherra sem sagði það argasta ósið að gefa íslenskum búðum útlenskt nafn. Heyr heyr.

sunnudagur, október 21, 2007

Af þýðingum...

Ég keypti mér bókina Mæling heimsins efti þýska rithöfundinn Daniel Kehlmann nú í nýafstaðinni reisu okkar Kristínar suður í sollinn. Margt hefur verið skrifað um þessa bók og allt gott - held ég. Ég má hins vegar til með að kvabba lítið eitt. Texti bókarinnar er að langmestum hluta í viðtengingarhætti þátíðar. Sá háttur er sennilega einn sá algengasti í ræðu og riti þýðverskra en í íslensku er hefð fyrir því að notast frekar við nafnháttinn, þá sérstaklega í beinni ræðu. Mér var bent á, þýðandanum til málsbóta, að kannski var ætlun hans að texti bókarinnar væri mestmegnis í óbeinni ræðu og þá er viðtengingarháttur ágætlega til þess fallinn. En hver sem hefur lesið í bókinni sér að hafi það verið ætlunin, tekst afar illa til. Og til að bæta á kvabbið er dálítið um prentvillur í bókinni - en slíkt má auðveldlega koma í veg fyrir með góðum prófakalestri. Annars er efni bókarinnar ágætt þó mér þyki ekki tilefni til yfirlýsinga á borð við þær sem finna má aftan á bókinni. Kannski hefði svo verið með skikkanlegum viðsnúningi yfir á okkar ylhýra.

Annað dæmi af sviðuðum toga er bókin Um sársauka annarra eftir Susan Sontag, blaðakonu, rithöfund, fréttaljósmyndara og fleira. Í bókinni ræðir hún það hvernig við höfum smám saman orðið því sem næst ónæm fyrir sársauka náungans enda blasa við manni hörmungarnar á öldum ljósvakans dag hvern. Íslensk þýðing þeirrar bókar var svo enskuskotin að um miðja bók þoldi ég ekki meir. Ég hef ekki enn lokið við hana. Hið íslenska bókmenntafélag gaf bókina út. Ég hélt að þeirra stimpill væri ávísun á í það minnsta læsilegan texta en svo er ei.

Ég gæti nefnt fleiri dæmi en læt það ógert að sinni og vona að þeir sem taka til við að þýða bók yfir á íslensku hugsi hana líka á íslensku. Ég lofa Einari Benediktssyni að reka botninn í þetta harmakvein mitt.

Við spor hvert um Bifröst, að Heljar hyl
til himins, vor tunga bjó vörðu.
Þú last þetta mál með unað og yl
yngdan af stofnunum hörðu.
Ég skildi, að orð er á Íslandi til
um allt, sem er hugsað á jörðu.

mánudagur, október 01, 2007

Afi syngur.

Það er ógurlegt bras að fá allar þær vegabréfsáritanir sem þarf fyrir ferðina miklu yfir hafið. Við þurfum að hringja tvist og bast útum alla Evrópu til að ná á þeim ráðunautum (eða fulltrúum þeirra) sem geta hjálpað okkur.

Og þá er óátalið vesenið allt kringum Rússland.

En þolinmæðin þrautir vinnur allar, sagði afi. Hann veit hvað hann syngur.

þriðjudagur, september 18, 2007

Þá er kannski rétt að stinga niður penna.

Nú er kominn miður september. Haustið er komið. Napur vindurinn hvín um sölnuð laufin sem falla þungt til jarðar. Það snjóar í fjöll. Það er kalt úti. Og mitt í allri dramatíkinni staulast ég í vinnuna. Feta yfir hæðir og frostkaldan mel. Undir lágnættið. Ég er nefnilega farinn að vinna á sambýli hér á Akureyri og er eingöngu á næturvöktum. Það er ágætt. Mun skárra en Vestfjarðarmiðin. En óskaplega lækkuðu launin. Það verður bara að hafa það.

Sjósóknin varð nú hálf endasleppt þetta sumarið. Fyrir eigin klaufaskap var ég sendur í land - en ég klemmdi einn baugfingur allhressilega. Fingurgómurinn hálfur af. Sem betur fer hékk hann á og doktorinn saumaði hann við restina af sjálfum mér. Hann er nú óttalega ljótur ennþá blessaður, hálf skakkur allur og skældur. Í sárabætur fór ég þó hálfum mánuði fyrr í land en ella - ég grét það ekki.

Milli þess sem ég vinn hugum við Kristín að utanferðinni en nú er að koma mynd á túrinn. Við eigum pantað flug til London 4ða janúar og frá London til Mumbai (Bombay) á Indlandi þann 8. Við ætlum þvert yfir N-Indland með viðkomu í Nýju Dehlí, Taj Majhal. Við áætlum mánuð á Indlandi. Þá hefjum við okkur til flugs eilítið austar. Okkur langar að svipast um í Víetnam, Laos, Kambódíu og Tælandi. Sennilega förum við nú ekki til allra þessara landa - en hver veit.

Næst ætlum við til Nepal og frá Kathmandu prílum við yfir Himalaya til Tíbet í Kína. Á leiðinni ætlum við að skoða Snjómanninn ógurlega. Frá Lhasa í Tíbet tökum við stefnuna á Beijing með viðkomu á Yangtze-fljóti og heljarstíflunni, í Hong Kong og Shanghai. Þá fer enginn til Kína án þess að ganga á Kínamúrnum og há hildi við hlið Terrakotta-leirkallanna . Í maíbyrjun tökum við Síberíuhraðlestina frá Beijing, gegnum Mongólíu til Moskvu í Rússlandi. Vonandi stöldum við við í Ulaan Baatar, í Irkutsk (og förum á skauta á Bajkal-vatni) og í Tomsk (ekki Omsk).

Í Moskvu vil ég sjá Lenín í sem liggur andvana, máttvana, magnvana í glerkassa á Rauða torginu. Þá liggur leiðin með lest (sem var sprengd nú fyrir skemmstu) til Santki Pétursborgar og þaðan yfir til Finnlands og Svíþjóðar. Svo um mánaðarmótin maí-júní á næsta ári lendum við heima í heiðdalnum, staurblönk með slitna skó. Rétt í tíma til að mæta á júbíleringuna. Mikið hlakka ég til.

Það er ágætt að geta leitt hugann að þessu öllu saman sem framundan er en við Kristín erum næstum ein eftir hér á Akureyri. Flestallir aðrir eru horfnir út eða suður. Og svona rétt á meðan þetta ástand varir dauðlangar mig í skóla. Ég uni mér stundum við lestur áfangalýsinga eðlisfræðikúrsa sem kenndir eru í HÍ. Svo væri gaman að taka nokkra hugvíkkandi áfanga með allri eðlis- og stærðfræðinni. Þá er ég þegar farinn að horfa lengra - út fyrir landssteinana. Í dag langar mig í framhaldsnám í Trinity College í Cambridge á Bretlandi. Og feta í fótspor Newton, Russels og Wittgensteins. Kannski langar mig annað á morgun. Það kemur í ljós...

mánudagur, júní 18, 2007

Þá er ég brautskráður...

Þá er það búið. Nú er ég ekki lengur nemi í MA. Gærdagurinn var hreint út sagt frábær. Ræs snemma. Seint að sofa. Þó leið hann vel og örugglega. Má til með að lýsa yfir ánægju minni með ávarp 60 ára júbílants á athöfninni um morguninn. Það er sjaldan núorðið að maður heyri svo fallegan og safaríkan texta.

Ég má til með að gorta lítið eitt: Stúdentseinkunnin mín var 8,66 og þá hlaut ég viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í stjarnfræði.

Ennfremur vil ég þakka öllu því frábæra fólki sem ég kynntist í MA fyrir árin og hlakka innilega mikið til að hitta ykkur á afmælishátíðum komandi ára og áratuga... Er ekki frá því að smá tómarúm hafi myndast.

E.S. (21. júní): Fer á sjó í kvöld. Veit ekki hvert ég fer eða hvenær ég kem heim. Bið að heilsa í land.

mánudagur, júní 11, 2007

Af próflokum...

Hvernig er tilfinningin? Hvað ætlarðu að gera? Finnurðu ekki fyrir smá tómarúmi, smá gati á sálinni? Er engin eftirsjá í gamla skólanum? Ertu búinn að ákveða eitthvað með framhaldið?

Hugsa að ég búi bara til svona útskriftardreifildi með svörum við öllum helstu spurningunum og dreifi í veislunni.

föstudagur, maí 25, 2007

Af misþyrmingum...

Ég misþyrmdi Gunnarshólma á dögunum til heiðurs stærðfræðideildinni í MA.

Sólargeislar kyssa Möðruvallaskóla
mmm og strjúka M8 blítt um hvassan vanga
mmm skýjabakki svífur yfir Hóla.
Hugfangnir hlýða vetrardaga langa
mmm á meistarann mæla lög um hornaföll
mmm víxlin mengi og margföld heildi ræða.
Daglega klífa margflötungafjöll
mmm við tekur tími kúluhornafræða
mmm og leiðsögn um Eulers tignarlegu höll.
En lífslöngun þverr er manni fer að blæða
mmm í baráttu við heimadæmatröll
mmm svitna og svelta níu stök í mengi.
Upp rísa saman með reidda rimmugýgi
mmm og henda reiður á flókin talnaspjöld
mmm eitt af öðru falla diffurvígi.
Liggur í valnum heimadæmafjöld
mmm tvíefld til lífsins svífa burt á skýi
mmm deilum með núlli og þá er sagan öll.

Þá greip mig heiftarleg þágufallssýki - mér hefnist greinilega fyrir spjöllin.

miðvikudagur, maí 09, 2007

Af næstu dögum, vikum og mánuðum...

Nú er komið að því að útskrifast. Og þá skal maður sannarlega sletta skyrinu sem aldrei fyrr - þó skyráman sé svo gott sem tóm eftir veturinn. Ástæður þessara geigvænlegu fjárútláta sem hlaupa á þúsundum eru margvíslegar. Húfur, Dimmiso-búningar, óvissuferð, gjafir handa kennurum, hátíðarverður að kvöldi þess sautjánda og fleira og fleira. LÍN ætti að veita styrki sérstaklega fyrir þessa síðustu daga stúdentsefna við framhaldsskólana víða um landið. Það er dýrt drottins orðið.

Ennfremur lauk ég fjarnámi frá Verslunarskólanum á dögunum. Það voru hræbillegar níu einingar. Aldrei datt mér í hug að ég myndi einhvern tíman hafa eitthvað við þá stofnun að snælda. Senn líður svo að prófum hér í MA. Fyrsta prófið mitt eftir hérumbil þrjár vikur á skjön við alla aðra. Enda erum við Menntskælingar öfugir hvern við mann.

Þá er ég nánast búinn að losa mig við Carminuna. En ég asnaðist til að taka mér formannssæti í þeirri nefnd. Ég held hún verði bara hreint prýðileg þetta árið.

Eftir útskrift vonast ég eftir plássi á einhverjum Samherjadallinum. Helst alveg fram undir jól. Þá leggjum við Kristín land undir fót und wir wollen nach Deutschland reisen um Deutsch zu lernen. Aukinheldur stefnum við til Rússlands. Frá Moskvu er ætlunin að ferðast með Síberíuhraðlestinni niður til Peking til að skoða heimsveldi 21. aldarinnar. Ég hlakka mikið til.

Ég fékk nýju plötuna Bjarkar í afmælisgjöf. Þar er að finna dálítið pönkaða, dálítið elektróníska og dálítið hugljúfa tónlist. Mæli með Björk.

Annars hygg ég á heimsyfirráð...

fimmtudagur, apríl 19, 2007

Kunstmaleri

Þetta er skemmtilegt.

þriðjudagur, apríl 10, 2007

Björk

Ég er kominn af sjó. Veltist um í Björgvin EA-311 með fjórtán öðrum karlmönnum í nokkra daga. Það var ágætt. Fín æfing fyrir sumarið.

Þá var mér tilkynnt að ég ætti miða á Björk. Það var gaman að fá miða svona algerlega óforvarendis. Og hún stóð svo sannarlega fyrir sínu hún Björk. Mikið rosalega syngur hún vel. Nýju lögin hennar hljómuðu líka prýðilega. Sérstaklega þótti mér lagið Declare Independence, sem hún tileinkaði Grænlendingum og Færeyingum frambærilegt. Dálítið afturhvarf til fyrri verka, það hefði allt eins getað verið á t.d. Post eða Debut. Ég hugsa að ég fjárfesti í eintaki af plötunni Volta sem kemur út 7. maí n.k.

Svo er skóli á morgun, síðasti áfanginn fyrir útskrift. Þetta hefst allt fyrir rest.

mánudagur, apríl 02, 2007

Af sjóferðum

Ég er að fara á sjó. Fer út á morgun og kem í land á mánudaginn eftir viku, annan í páskum. Þar fór páskafríið, en það verður bara að hafa það...

mánudagur, mars 26, 2007

Í Síberíu

Mig langar í lestarferð með Síberíuhraðlestinni. Hún er rétt rúma sex daga frá Moskvu til Peking. Á þessum tíma ferðast hún tæplega tíuþúsund kílómetra...

þriðjudagur, mars 20, 2007

Af utanferðum...

Bertrand Russell var einstaklega hnyttinn maður:
"I would never die for my beliefs because I might be wrong."

Rússland?

sunnudagur, mars 04, 2007

Ég raula raunakvæði...

Nú er illt í efni. Ég er með einkirningssótt. Er þó ekki dauðvona, æli hvorki blóði, lifri né lungum heldur er með heiftarlega hálsbólgu og bólgið milta og lifur. Lá meira að segja heila nótt á FSA með næringu í æð og tilheyrandi. Nú á ég að liggja heima heima í viku og bryðja bólgueyðandi. Það er ömurlegt. Fæ ekki einu sinni að fara í skólann í heila viku eða hreyfa mig að ráði í mánuð. Annars gæti ég endað í endurhæfingu inni á Reykjalundi, sagði doktorinn mér. Veikin er þó ekki bráðsmitandi, nema þá helst einhver vilji blanda við mig munnvatni. En það er náttúrulega viðbjóðslegt svo það er engin hætta á því...

Nú sit ég því hér á Dalvík með skeifu niður á mjaðmir og hálfpartinn kvíði fyrir komandi tíðum. Ekki nóg með að ég hafi misst af Gettu Betur-keppninni og skíðaferð með MR-ingum. Svo ég tali nú ekki um ræðukeppnina sem ég tók ekki þátt í sökum veikinda. Já, það blæs ekki byrlega fyrir Elíassyni þessa dagana. En þetta jafnar sig fyrir rest. "Grær áður en ég gifti mig", eins og afi segir alltaf.

En ætli ég endist nokkuð hér heima á Dalvík út vikuna, onei. Ég sé til hvað ég geri. Bara hvað sem þið gerið, ekki blanda við mig með munnvatni, nema þið viljið fá einkirningssótt...

...hef reyndar heyrt að sóttin sé aðalpartýtrikkið þessa dagana, þannig að...

mánudagur, febrúar 26, 2007

Af frídögum og komandi dögum...

London var svei mér skemmtileg borg. Rosalega mikið af fólki. Oxford og Cambridge voru að sama skapi huggulegir skólabæir. Þótti Cambridge búvænlegri. Virtist rólegara og svo eru fræðin í mínum stíl. Feta í fótspor Newton og Hawking, Barrett og Gilmour. Ekki slæmt það. Þar væri gaman að búa nema einn daginn.

Framundan er sitthvað. Hæst bera sennilega skiladæmi tvö hjá Áskeli en þeim ber að skila á föstudaginn kemur. Þá etur MA kappi við Versló í Gettu Betur á föstudagskvöldið og sólarhring síðar mætast Eygló og MR í Morfís-keppni. Umræðuefnið er Er Akureyri betri en Reykjavík og mælir Eygló með en MR-ingar á móti.

Á næstu dögum svo flyst lögheimili mitt úr Bjarkarbraut 1 yfir í Hólaveg 9. Hripi þetta hjá sér sem vilja en hinir skeyti engu...

mánudagur, febrúar 12, 2007

Út vil ek...

Brátt held ég utan.
Á miðvikudaginn bruna ég út fyrir bæjarmörkin til Reykjavíkur. Í háskóla- og starfskynningu með fjórða bekk.
Eftir viku flýg ég svo frá suðvesturhorninu til London. Í vísindaferð með fjórða X.
Það verður svei mér gaman...

fimmtudagur, febrúar 01, 2007

Nóg að gera í fjórða bekk...

Ég var að byrja síðustu önnina mína í Menntaskólanum í dag. Hún byrjaði heldur tómlega... á FIMMFALDRI eyðu. Fór í tvo tíma þennan daginn. Fer í þrjá tíma á morgun. Mér líst illa á þetta. Ekkert að gera. Það er ómögulegt.

Og það á fjórða ári...

sunnudagur, janúar 21, 2007

Af rasísku veggjakroti og málverndun...

Á dögunum fluttu fréttmenn fregnir af rasísku veggjakroti í Reykjavík. Ósmekkleg slagorð á borð við "White power" og "Death to all immigrants!" dönsuðu kringum rauðmálaðan hakakross. Burtséð frá innihaldi þessara ógeðfelldu útrópana fæ ég ekki skilið hvers vegna þeir þjóðernissinnar sem standa þar á baki rita ekki slagorðin á íslensku. Hér er fyrst og fremst um að ræða fólk sem er af asísku bergi brotið og það fólk kann ekkert frekar ensku en íslensku.

Þjóðernissinnarnir vilja augljóslega hreinan kynstofn íslendinga og ekki menga sína menningu með útlendri. Þeir vilja vernda menninguna og í því felst m.a. að halda tungumálinu hreinu, annað væri mótsögn. Vilji veggjakrotarar koma til móts við innflytjendurna svo þeir skilji slagorðin þyrftu þeir að rita þau á því tungumáli sem við á. Þó hjálpa tákn eins og blóðrauður hakakross til við að koma skoðunum á framfæri til þeirra sem ekki skilja illviljaðar upphrópanir.

Ég legg því til að rasískir veggjakrotarar verði sjálfum sér samkvæir og riti meiningar sínar á sínu ylhýra. Svo gætu þeir bætt við skýringum á því tungumáli sem við á. Það er betra.

Best væri samt ef rasistarnir hættu að vera rasistar og kenndu innflytjendum að meta okkar menningu og kenndu þeim tungumálið. Þannig vernda þeir menninguna og jafnframt tunguna. Það er best...

miðvikudagur, janúar 10, 2007

Af prófum og sextugum listamanni...

Nú eru próf. Það er gott. Kominn tími til. Prófatíð boðar nýja tíð með nýju upphafi. Það er nauðsynlegt að endurræsa kerfið endrum og eins.

Vil óska David Bowie til hamingju með sextugsafmælið nú á mánudaginn var. Allir ættu að leggja sig eftir þeim snillingi. Það er gott að hvíla lúinn heila í Amsterdam , fremja Rokk og ról sjálfsvíg og leita að Lífi á Mars. Auðgar andann.

Langar að birta ljóð. Þar kveður við fremur neikvæðan tón, líkt og allur heimsins harmur hvíli þungt á veikum herðum, líkt og ég sé aðframkominn í eymd og volæði. Að tilgangsleysið sé algjört. Tómhyggjan syngi lofsöngva um sjálfa sig í kollinum á mér líkt og spörfuglar vorsins því til heiðurs... en svo er ekki.

Í veraldlegar villur hef ég ratað,
mannorð mitt í auri út atað,
vegna hroka græðgi svika lyga og pretta
þeirra sem næst standa með hjálparhönd útrétta.

Eftir á, ég horfi út í geiminn, dreyminn,
dreg seiminn og spyr:
"Til hvers kom ég eiginlega í heiminn?"

miðvikudagur, janúar 03, 2007

Af deyfingum...

Fór áðan til tannlæknis. Hann deyfði á mér neðri kjálkann. Það er mjög skemmtilegt. Ég get slegið mig utanundir og bitið í tunguna án þess að finna nokkuð. Svo á ég erfitt með að tala. Aldrei hefði mér dottið í hug að þetta væri svona gaman. Ég held ég fari fljótlega aftur til tannlæknis...

mánudagur, desember 25, 2006

Af Leppalúða...

Feitan, latan Leppalúða
virðum umfram alla.
Hann laminn er og kúgaður
mest íslenskra karla.

Í hræðslu kvenkyns klessuverki,
klappar, kyssir, sefur hjá.
Enda brytjaði hún og bruddi
fyrri eiginmenn sína þrjá.

Óhæfur til undaneldis
er jóla-Grýlu herra.
Saman hafa á samviskunni
þrettán jólaperra.

Ég vil með þessum jólabrag votta fórnarlambi Íslands samúð mína og virðingu. Heill þér Leppalúði.

Gleðileg jól öll þið hin...

mánudagur, desember 18, 2006

Af helsi eðlisfræðibrautarnema...

Ég fordæmi ólöglegt samráð kennara á eðlisfræðilínu um að leggja fjóra síðustu dagana fyrir jól undir jafnmörg próf. Þessi tími á að fara í annað en prófalestur. Þetta er ömurlegt...

mánudagur, desember 11, 2006

Af frelsun ungmenna...

Guði sé þakkargjörð, mér er borgið. Meira um það hér. Ég bendi sérstaklega á brot úr bókinni How to be a Successfull Teenager. Þau má finna í gulum kassa hægra megin á síðunni. Greinarbrotin heita The Secret About Hell og How to be Really Happy.

Hér opnuðust jafnframt augu mín fyrir hræðileika hlutverkaleiksins Dungeons & Dragons.

Um þetta og meira til má lesa á vefsíðunni www.chick.com. Hvet alla til að kynna sér málið og skoða hlutina í réttu ljósi...

mánudagur, nóvember 27, 2006

Af Morfís...

Þótti heldur súrt í broti að lúta í lægra haldi fyrir Verslunarskólanum í Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi s.l. föstudag. En illt er að deila við dómarann svo ég læt þetta að mestu óátalið.

Satt að segja vona ég að Verslingar haldi uppteknum hætti og haldi til streitu sínum beinskeytta og vafningalausa ræðustíl sem einkenndi liðið í Kvosinni. Svo alþjóð sjái hversu frábært en umfram allt rökfast og mælkst ræðulið er þar á ferð...

föstudagur, nóvember 24, 2006

Eygló gegn Versló...

Í kvöld etja kappi Morfíslið MA, Eygló og lið Verslunarskólans í Kvos Menntaskólans á Akureyri. Keppnin hefst kl. 20:00. Ég hvet alla til að mæta og styðja mig, Birnu, Guðna og Val. Við ætlum að vinna þessa keppni...

laugardagur, nóvember 11, 2006

Af snillingum...

Ég tek hatt minn ofan fyrir snillingnum Sacha Baron Cohen og hvet um leið alla til að leggja leið sína að sjá kvikmynd hans Borat.
-Are you saying that the man who was trying to put a rubberfist in my anus was a gay person?

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Af blaktandi rauðum fánum...

Rakst á ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum. Það heitir Fyrsti maí. Má til með að deila broti úr ljóðinu.

En rauðu fánarnir rísa
yfir riðandi múgsins höfuð.
-Það er lýðsálin, lituð í blóði
það er lýðsagan eldi stöfuð.
Það er hatrið gegn helvíti og kirkju
og hervaldi og auðkóngastjórn.
Það er eiðstafur öreigastéttar
um uppreisn - og hinztu fórn.

Því fórnin er viðkvæði vorsins,
-það vekur og kann ekki að hlífa,
og sízt af öllu sér sjálfu.
Með sjálfsfórn skal illt út drífa.
-Hin argasta andstyggð, sem þekkist,
stenzt aldrei þann drengskap sem ký
í sölurnar líf sitt að leggja.
Gefið lífið - og sigur er vís.

Þetta er svo innilega kommúnískt að ég bara mátti til...

mánudagur, október 30, 2006

Af trúboði...

Vafasömu trúboði Þjóðkirkjunnar í nokkrum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu ber að veita athygli...
Meira um það hér, hér, hér og hér.

þriðjudagur, október 24, 2006

Ljóð

Í fjarlægð situr foringinn og hrópar
þið verðið að drepa drepa drepa
því vélin verður að éta.
En þeir eiga fullt í fangi
með að halda vélinni í gangi
því vélin vex og vex
og ekki vill hún kex.
Heldur útheimtir hún egg
hin dýrmætustu fjöregg.

Vélin vill þau ekki hrá
og ekki blá, hvað vill hún þá?
Hún vill þau spæld
Spæld fjöregg lítt breyttra karla og kvenna
heilu þjóðirnar á silfurfati
uns hún stendur á gati.

Þó leiðtogar landanna segi stopp
þessi vél sé algjört flopp
hún boði ekkert gott
þá hafa þeir það flott.
Því þeir hafa pata
af því að vélin hljóti skjótan bata
því vélin framleiðir framleiðir gull þeim sem henni eru hliðhollir.

Eins dauði er annars brauð
-mitt kökufrauð.
Og bakaríin eru full
enda malar vélin gull.
Og börnin blæða því egg þeirra eru fæða
Án leyfis eru eggin spæld
skurnin skæld
Heilu hænsnabúin hverfa senn
verða í denn
en það er allt í lagi, þetta eru villutrúa- og hryðjuverkamenn.

þriðjudagur, október 17, 2006

Á gangi...

Á gangi í mannmergðinni í Tókíó sker ég mig úr. Stend upp úr. Er höfðinu hærri en allir í kringum mig. Ég finn hlýjan, rakann sumarvindinn strjúka vangann. Hann ber með sér illan daun...
...þú ert andfúl.

fimmtudagur, október 12, 2006

Eygló

Morfísliðið Eygló var stofnað í gærkvöldi eftir skemmtilega inntökukeppni í Kvos Menntaskólans. Ég er í liðinu.

Okkar fyrsta keppni verður í nóvemberlok í Kvosinni, gegn Verzló...

...sjitt

mánudagur, október 02, 2006

Er þetta spurning?

Ef þetta er spurning, þá er þetta svar.

laugardagur, september 16, 2006

Af Búlgaríu, Tyrklandi og Menntaskólanum í upphafi haustannar...

Hoppað upp í rútu í Borgarnesi, brunað gegnum borgina, upp á Miðnesheiði og 140 menntskælingar takast á loft á leið til fyrirheitna landsins. Lentum í borg nærri ferðamannanýlendunni Sunny Beach og héldum þangað beina leið á hótelið Flamingo. Ég rölti í bítið ásamt öðrum um svæðið og okkur var boðin gisting á á erótískum skemmtistað. Ansi áhugaverð fyrstu kynni af landi og þjóð. Annars renna þessir dagar allir saman í eitt. Reis úr grjóthörðum bedda á hótelherberginu um hádegisbilið, át, slappaði af hér og þar fram að kvöldmatarleytinu, át, djammaði, svaf... Ósköp ljúft og einfalt líf í hálfan mánuð.

Þessi staður er bersýnilega mjög ungur ferðamannastaður og bera nafngiftir í og á staðnum því skýrt vitni; Sunny Beach, Flower Street, Flamingo, Tropicana etc. etc. Það var mjög ódýrt að lifa þarna enda greip neysluæðið mann fastatökum og hvergi var til sparað í mat og drykk á veitinga- og öldurhúsum bæjarins eða smáverslunum í þúsundatali. Þar versluðu smákaupmenn með merki á borð við Diesel, Puma, Ray Ban, Dolce & Gabbana, Gucci og Tommy Hilfiger af miklum móð á afar hagstæðum kjörum. Nýjustu kvikmyndirnar sem varla enn sjást í bíói fylltu þartilgerða rekka. Eitthvað segir mér að lítt sé hirt um höfundarréttinn þar ytra. Sölumennskan er yfirþyrmandi, en á Sunny Beach eru ekki ekki útkastar á veitinga- og skemmtistöðum, heldur innkastarar. Sem sýnd veiði var maður besti vinur veitingamanna en hunsaði maður þá hötuðust þeir við mann. Þessu var svipa farið með hórurnar. Ein bauð mér munnmök fyrir 300 ISK. Ég afþakkaði pent. Og þó maður þættist vera hommi héldu þær samt áfram að áreita mann og spörkuðu eða slógu ef maður rétti ekki út skaufann.

Þarna skammt frá var lítil eyja, þakin kirkjum síðan sautjánhundruðogsúrkál. Hún er víst á þjóðminjaskrá UNESCO og heitir Nessebar. Þökk sé ákaflega einföldu og ódýru strætisvagnakerfi skrapp ég þangað oftar en einu sinni enda fagurt um að lítast. Þröngar götur, skransalar, fornminjabúðir, veitingahús og kirkjurústir gáfu staðnum líf. Einn besta veitingastað svæðisins, Romantika, mátti finna á eyjunni. Annar góður hét Piccadilly með búlgarskri Irion-steik. Helsti skemmistaðurinn var Lazur, Disco Club. Speisaður neónstaður með sama lagalistann mörg kvöld í röð... partý. Músíkin í Búlgaríu er ferleg og eftir hálfan mánuð af stanslausum hamarshöggum fer þessi teknósíbylja að verða dálítið þreytandi þó svíasmellurinn Boten Anna sé teiti. Maður skal varast lögguna sem byggir sitt land ekki með með lögum heldur lemur og rukkar af tilefnislausu og leigubílstjórum sem ræna sama manninn tvisvar sinnum sama kvöldið.

Einn af hátindum ferðarinnar var ferðin til Istanbúl, Konstantínópel, Miklagarðs. Þar barði ég augum í Bláu moskuna, Hagia Sofia, 3000 ára gamlar broddsúlur og konungshöll. Verslaði mér tvö tyrknesk hljóðfæri, fór ekki til Asíu og drakk Sviss mokka á Starbucks. Komst að því að Búlgarir gera betra kebab en Tyrkir og sá rússneskan leigumorðingja á hótelinu okkar í Istanbúl. Umferðarmenningin er hreint stórslys og öruggast að halda sig innandyra. Þessi 10 milljón manna stórborg heillaði og mig langar að koma þangað einhvern tíman aftur.

Svo loks eftir tveggja vikna teiti með tilheyrandi skemmtun, skoðunarferðum, fylleríi, vægum matareitrunum og sigri 4.X í strandblakinu snerum við heim öllsömul, nokkurnvegin ósködduð eftir ferðina. Svo tókst náttúrulega helvítis vallarstarfsmönnunum á flugvellinum í Bourgas að skilja aðra töskuna mína eftir í Búlgaríu og hef ég ekki enn fengið hana í hendurnar. Hún er þó víst komin til landsins þannig að ég örvænti ekki.

Svo mætti ég keikur í skólann í 4.X. Keypti mér eina eldavélarhellu í BYKO svo ég geti hitað mér kaffi í nýju espressokönnunni minni og fékk heimanám í stærðfræði fyrsta skóladaginn. Allt komið í samt lag á ný...

mánudagur, ágúst 28, 2006

Yfir og út

Er farinn í tveggja vikna teiti til Búlgaríu. Hafið það gott.

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Af vísifingri vinstri handar...

Ég er heima í heiðadalnum en ligg óvígur eftir fimm vikna siglingar um hafið. Ég skar neflinlega í fingurinn nú í síðasta túrnum, það lítur út fyrir að taka þurfi puttann af - við öxl. Sé því fram á rólega viku hér heima þar sem ég er lítt brúklegur til hvurs lags verkamannavinnu er kynni að bjóðast fram að Búlgaríu.

Þá má ég til með að benda unnendum ferskrar músíkur að kann nýjasta disk Goldfrapp dúósins, Supernature. Platan hefur að geyma útvarpssmellinn Ooh La La en ég vil sérstaklega benda á lokalagið Number 1. Alveg einstaklega gott grúv þar á ferðinni...

föstudagur, júlí 28, 2006

Af síðustu dögum...

Hafi einhverjir verið svo hugulsamir að velta því fyrir sér hvar ég hef verið síðustu daga þurfa þeir eigi meir að örvænta í óvissu. Ég neflinlega komst á sjó og hef verið síðasta hálfa mánuðinn. Svo fer ég aftur út á mánudag.

Áhugasömum vil ég benda á Sigurrósartónleika hjá Hálsi í Öxnadal klukkan 22:00 en ég ætla að leggja leið mína þangað sem háir hólar hálfan dalinn fylla...

mánudagur, júlí 10, 2006

Svona fór um sjóferð þá...

Ég fer ekki á sjó, allavega ekki í bráð og sit eftir heima með sárt ennið. Ég get svosem engu um kennt nema mínu brenglaða gildismati; sumt verður ekki metið til fjár-MasterCard er fyrir allt annað. Ég lulla því bara í pækilgrindunum í Sæplasti eitthvað lengur og vona að komast með dallinum næsta túr.

Í kjölfarið hurfu svo foreldrar mínir og litli bróðir til Króatíu. Þar sem ég er að fara í útskriftarferð ætlaði ég ekki að fara með og vera á sjó á meðan - en það klikkaði. Ég verð því einn hér heima næstu 18 dagana þannig að nánast hverjum sem er er meir en velkomið að veita mér félagsskap.

Svo ef einhver á miða á Belle & Sebastian tónleika eða þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem þekkir einhvern sem á langömmubróðurdótturdóttur sem heldur tónleikana og getur reddað mér frítt inn í Bræðsluna á Borgafirði Eystri þann 29. júlí nk, má hann gjarnan hafa samband við mig og selja mér miðann eða redda mér símanum hjá langömmubróðurdótturdótturinni...

mánudagur, júlí 03, 2006

Hamstrarnir Haddi og Lovísa

Auglýsingar umferðarstofu eru yfirleitt afar áhrifaríkar og vel til þess fallnar að vera víti til varnaðar. Í sundlauginni hér heima á Dalvík hangir uppi ein slík. Í þeirri auglýsingu segir af hjálmlausa hamstinum Hadda sem reynir að ganga í augun á Lovísu (sem er líka hamstur) með hörmulegum afleiðingum. Ég vil sérstaklega vekja athygli á viðbrögðum Lovísu við slysinu sem eru einkar hrottaleg. Hér ber að líta þessa kostulegu auglýsingu.

miðvikudagur, júní 28, 2006

Frá Sláturfélagi Suðurlands

Heyrði áðan í útvarpinu eftirfarandi klausu: "Grillkjötið frá SS, þú þekkir það á umbúðunum".

sunnudagur, júní 25, 2006

Af gyðjum og hrottaskap

Örvæntingarfulli uppgjafarsjómaðurinn sem hafnaði sjóferð á dögunum hefur fengið uppreisn æru. Hann fær brátt tækifæri til að anda að sér frískandi úthafsloftinu, lykta af Atlantshafinu, stíga ölduna, segja "harr harr harr" og síðast en ekki síst míga í hafið bláa hafið. Það er mikið atriði...

Fór í sund á dögunum. Ætti eiginlega að fá viðurnefnið Ottó - L(eiðinlegi) eftir þetta. Lögin var full af fólki enda glampandi sól, en ég ætlaði mér sko ekki að liggja í einhverju sólbaði. Greip því á það ráð að draga eina af flotlínunum yfir lögina til að fá minn sundfrið fyrir lítt hrifnum almúganum. Þannig eignaði ég mér tæplega þriðjung laugarinnar. Afar einfalt og áhrifaríkt en ekkert rosalega vinsælt. Ojæja...

Þá fékk ég undir hendurnar nýju Muse-plötuna Black Holes and Revelations. Glöggir hlustendur ættu að veita nýjum tónum athygli. Platan er mun bjartari en Absolution þá stutt sé í dramatíkina hjá Bellamy, sbr. upphafslagið Take A Bow. Þeir eru orðnir dansvænni og ber fyrsta smáskífan Supermassive Black Hole því skýrt vitni. Þeir eru meira fyrir hvurskonar svuntuþeysarahljóð og finnst manni að þeir tónar lyfta plötunni að eins upp og gera hana glaðlegri. Það vottar fyrir ádeilu á valdamestu menn heims og er það vel. Lokalagið Knights of Cydonia er kraftmikill lokahnykkur á þessa ágætu fjórðu plötu Muse. Hér getið þið svo horft á fremur sýrt myndband við hið skemmtilega Supermassive Black Hole. Mæli með því.

þriðjudagur, júní 20, 2006

Harkan sex

Heyrði nýjan iðnaðar- og virkjanaráðherra kynda undir stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum. Betra að fara í bátana, híf'upp fokkuna, stórseglið og allt heila klabbið svona til þess að vera öruggur um að drukkna ekki í öllum þessum tilfæringum.

Vil svo benda áhugasömum á að mjög gaman er að syngja þýska þjóðsönginn: "Deutschland, Deutschland uber Alles" við skólasöng okkar Menntskælingja.

Svo segi ég eins og þessi harði gaur hér: Jæja, fokkinn farinn!

föstudagur, júní 16, 2006

Þann 12. júní síðastliðinn...

Ég er hættur þessum stælum og hef ákveðið að opna vefsetrið á nýjan leik. Tilefnið er ekki af verri endanum, má til með að dásama snilling. Roger Waters er snillingur. Hann er svo mikill snillingur að hann hefði verið brenndur á miðöldum fyrir snilli sína. Þvílíkir tónleikar, það var sko ekkert dósahljóð í þessum græjum. Legg til að allir upplifi a.m.k. eina tónleika með Waters um ævina. Það er mannbætandi.

En talandi um músíkanta. Þó hann standi Roger að baki hvað mikilfengleik varðar er hann ekki síður skemmtilegur. Má ég kynna diskó-funkarann Donald Fagen. Mæli með plötunni The Nightfly. Ákaflega skemmtileg hljómplata. Fagen léttir lund.

Svo hefur atvinnulausi sjóarinn fengið vinnu. Byrja að vinna í Sæplasti á máudag. Gegni afar mikilvægu starfi. Mun sjóða pækilgrindur eða eitthvað í þá veruna. Annars vonast sjóarinn nú eftir því að fá tækifæri til að skvetta úr skinnsokknum í hafið bláa. Því veitir ekki af smá lit.

Þess í millum reyni ég svo að finna mér stað í sveigðu tímarúminu. Uni mér við lestur torskildra eðlisfræða, það er fyrir nördinn í sjálfum mér. Af og til gríp ég svo í hljóðfæri, gítar, saxófón, úkúlele eða bara hef upp raustina og læt tónana flæða, nærstöddum til ómældrar óhamingju...

fimmtudagur, mars 23, 2006

Vegna annars lögmáls varmafræðinnar...

Vegna annars lögmáls varmafærðinnar og óvermna kerfa er ég hættur að blogga. Ofan á lögmálin einfaldlega nenni ég því ekki. Mér þykir leiðigjarnt að upphugsa einhverja sniðuga bloggfærslu reglulega. Hef því sagt upp störfum.

Dyggum lesendum þakka ég samfylgdina...

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Hin myrka hlið mánans

Tónleikar
Egilshöll
12. júní
Roger Waters
The Dark Side of the Moon

Ég lifi draum...

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Smekklaust

Fyrir þá sem hafa ekki skoðað vef Smekkleysu mæli með þessum tengli hér. Hér má finna fullt af prýðlegri íslenskri músík. Vil ég þá sérstaklega benda áhugasömum á lag hljómsveitarinnar Rass, en því var gefið nafnið Burt með kvótann. Einstakega hresst og skemmtilegt pönk-skotið rokk.

föstudagur, febrúar 10, 2006

Ungmennafélagsandinn

Við munum andmæla gloppóttri orðræðu menntamálaráðherra varðandi skerðingu námstíma til stúdendsprófs niðri á Ráðhústorgi þann 22. febrúar n.k. Ertu með?

fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Byrjað af krafti

Ég fór í fyrsta tíma nýrrar annar í morgun. Mætti stundvíslega upp í M6 kl 8:10. Næsti maður inn í stofuna var Dr. Áskell Harðarson. Auðvelt var að lesa úr fasi Doktorsins að hann ætlaði að hefja leikinn af krafti. Á slaginu 8:15, merkti Doktorinn við þessar örfáu hræður X-bekkjarins og tók svo við að pára glósur á snjóhvíta töfluna... kl 8:17. Hann glósaði feykimikið og í upphafi seinni tímans fengum við heimadæmi. Ég leyfi mér að dæsa...

þriðjudagur, janúar 31, 2006

Hörmungin ein?

Var að reyna að fríkka síðuna.

Tókst það?

sunnudagur, janúar 29, 2006

Ég legg til...

...að gerð verði álafsteypa af iðnaðarráðherra og báðum komið fyrir á Austurvelli.
...að Þorgerður Katrín fái fálkaorðuna fyrir persónulegt framlag sitt til menntakerfisins
...að James Blunt leiti á nýjar atvinnubrautir, læri einhverja hagnýta iðn og verði samfélaginu að gagni.

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Af íslenskuhallærum...

Ég sat sem steinrunninn fyrir framan kassann í gær og glápti á unga Reykvíkinga tala um sitt ylhýra. Þeir tjáðu sig um áhyggjuleysi yfir (fram)þróun íslenskunnar síðustu árin í tenglsum við aukið samband við um heiminn og aukið frjálsræði í tjáskiptum, td. blogg. Fréttamaður tók viðtal m.a. við eina stúlku sem hefur tamið sér það að segja: "Opnaðu dorina!" í stað þess að brúka það sem henni var kennt og segja: "Opnaðu hurðina!". Hún semsagt kaus að nota enska orðið yfir "hurð" þ.e.a.s. "door" með þessum líka hörmulegu afleiðingum. Blessunin réttlætti svo málfar sitt með því að eðlilegt væri að tileinka sér orð til að tungan yrði tamari eða eitthvað álíka gáfulegt. Það er eitt að nota tökuorð úr öðru tungumáli og heimfæra upp á íslensku, en annað að misnota erlend orð í sínu eigin móðurmáli. Mér þótti þetta ankanalega orðaval eins órökrétt og blátt áfram fáránlegt. Hvílíkt orðskrípi, mér blöskraði. Legg til að þessi stúlka verði hneppt í varðhald fyrir aðför að íslensku máli. Og svo finnst fólki þetta bara allt í góðu...

Sökum þessa hef ég kosið að gerast öfgamaður og stofna hreintungufélag á Íslandi.

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Prófaspjallið...

Það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Jóni Má um að prófa skyldi allan Menntaskólann. Hann sagði: Verði próf. Og það varð próf.

Að sjálfsögðu gengst ég við þessari tilskikkan yfirvalda og læt prófa mig í flestöllu sem ég hef að einhverju marki stúderað í vetur. Núna er mesti hjallurinn að baki, matematíkin. Það er nú undarleg tík... Tík með heildunum og tilheyrandi innsetningaraðferðum og stofnbrotsliðun, tík með línulegri nálgun, tík með þrepunarsönnun og velröðunarreglu. Virkilega margþætt og skemmtileg tík.

Eftir að hafa rutt þessum prófsteinum úr vegi, en þeir eru þrándur í götu minni nú, ætla ég að þéna dulítið. Skilst að hrognavertíðin sé hafin... Ég mun þá líklega salta hrogn í vetrarfrínu. Hlakka annars mikið til að komast heim, NAD T-753.

Áhugasömum vil ég svo benda á að í kvöld klukkan 20;00 mun MA sigra ML í spurningakeppni framhaldsskólanema. Hægt er að hlýða á ómþýðar raddir bera okkur visku eigendana á Rás 2.

Áhugasömum vil ég ennfremur benda á að kynna sér músíkina úr rokkóperunni Jesus Christ Superstar. En hún er einmitt sisvona líka alveg hreint sérdeilis prýðilegt áhlustunarefni. Ég mæli þó sérstaklega með þeirri útgáfunni þar sem Ian nokkur Gillian ljær Jésúm rödd sína...

föstudagur, janúar 13, 2006

Hvenær drepur maður mann, og hvenær drepur maður ekki mann?

"Sannleikurinn er það, sem þú veist best um sannleikann."
Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri DV í Kastljósinu miðvikudaginn 11. janúar

Legið á hleri á kaffihúsi í Zurich:

Die Frau: Ich möchte gern bestellen...
Der Ober: Ja, wir haben Schweinhund mit Schnauzer.
Die Frau: Das gefallt mir sehr gut, kann ich auch Sahne haben?
Der Ober: Tut mir leid, die Sahne it krank haute.
Die Frau: Das ist schlect.
Der Ober: Sonnst noch etwas?
Die Frau: Nein, danke.
Der Ober: Kommt sofort...

Fyndinn ég...

sunnudagur, janúar 01, 2006

Stanslaust stuð, að eilífu...

Ég held að hátíðir á borð við þessar, sem brátt renna nú sitt skeið, fái meir á mann heldur en "venjulegu" dagarnir. Maður verður svo dasaður eftir svona tarnir og nú ber svo við að ég er farinn að hlakka til að byrja að nýju í skólanum, þó svo að prófin séu á næsta leiti. Hlakka til þess að regla komist á hlutina.

Kannski hálfleiðinlegt raus í mér, veit ekki. Jólin hafa samt sem áður verið fram úr hófi ljúf, alveg hreint sisvona líka sérdeilis prýðileg afslöppun.

Má þó til með að minnast á skemmtiferð mína í Sjálfstæðishúsið í gærkvöldi (Gamlársdag), en þar var stanslaust stuð. Páll Óskar þeytti skífum sínum um danssalinn og tryllti misþyrst íslensk ungmenni og gamalmenni með afar fágaðri sviðsframkomu. Palli fær prik í kladdann.

Lesendum vil ég svo benda á að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að nálgast lagið "Achtung X-mas" með sænsku gleðipoppurunnum í hljómsveitinni "Tyskarna fran Lund". Þetta er frábær lagasmíð og einstaklega vel til þess fallinn að hleypa lífi í lappirnar...

föstudagur, desember 23, 2005

Ammoníak

Borðaði skötu í hádeginu, fékk ammoníakeitrun og var fluttur á gjörgæsludeild Fjórðungsjúkrahússins á Akureyri... Nei, ég lýg. Ammoníakið eitraði samt fyrir kvefinu mínu, um stundarsakir.

Skatan bragðaðist samt prýðilega...

mánudagur, desember 19, 2005

Hátíðarbragur í tilefni jóla

Ég óska sjálfum mér til hamingju með að hafa samið, tekið upp ( með dyggri aðstoð) og brennt jólakveðju á geisladiska, fyrir um og yfir 50 manns og sent frá mér sem jólakort.
Til hamingju Ottó...

Svo slepp ég víst úr prísundinni Menntaskólanum á morgun. Verð laus allra mála... um sinn. Fer í jólafrí, langþráð, kannski verðskuldað, veit ekki. En umfram allt, slepp heim á morgun. Vona að Dalvíkin sé undir mig búin. Ég tek kannski fram snjóbrettið mitt í jólapásunni, þ.e. ef nokkur snjór fyrirfinnst á þessari guðsvoluðu eyju norður í ballarhafi...

miðvikudagur, desember 14, 2005

Bingóhasar

Ég var bingóstjóri í bingói 3ja bekkjarráðs eftir hlé. Skemmti mér náttúrulega konunglega við að lesa upp tölur og viðeigandi nöfn líkt og; Níels 28, Grétar 56 og Ottó 71. Spennan fór stigvaxandi og blóðþrýstingurinn rauk upp úr öllu valdi, ja allvega hjá mér sem fékk blóðnasir og þurfti að hætta keppni.

Ég held að ég finni mér eitthvað rólegra að dunda við eftirleiðis...

Altósaxófónn

Ég aldrei bloggað áður, ef frá er talin þessi tilraunamennska mín hér að neðan. Því veit ég ekki hvað ég á að skrifa eða hvers er krafist af skrifum mínum. Ég lýsti því nú eitt sinn yfir í hroka mínum að ég ætlaði aldrei að fá mér blogg. Fann ekki þessa þörf fyrir að opna sjálfan mig fyrir almannasjónum, en líkt og Bob Dylan söng eitt sinn, þá breytast tímarnir og líklega ég með...

En hvað sem því líður þá langar mig í saxófón...

miðvikudagur, desember 07, 2005

Bilerí

Er enn að kanna möguleika þessa tjáskiptatækir tuttugustu og fyrstu aldarinnar...

Sjöfréttir

Það er ekkert í fréttum, ég er bara að kanna skilvirkni þessa apparats...

Viðburðaríkur dagur

Í dag gerðist ekki neitt...