miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Af mannvitsbrekkum...

Eftirfarandi klausa birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni Enn er þróunarkenningin ósönnuð:

„Guðfinna S. Bjarnadóttir segir í Lesbók Morgunblaðsins hinn 3. nóv. sl.: „Þróunarkenningin tilheyrir vísindum og sköpunarkenningin trúarbrögðum.“ Ég vil benda á að enn er ekki vitað til að ein tegund hafi breyst í aðra, ekki hefur heldur milliliðurinn milli apa og manna fundist. Kenning þróunarsinna í sambandi við þroska mannsfóstursins hefur reynst algert rugl. Þeir segja t.d. í Frumlífssögunni, bls. 98 - 99, að sex mánaða gamalt mannsfóstur líkist fiski meir en manni! Getur þetta talist til vísinda?
mm Einhver spyr kannski, fara trú (kristin trú) og vísindi saman? Þessu svara ég hiklaust játandi og hér koma rökin beint frá Guðs orði, orði sannleikans. Jesús Kristur er höfundur trúarinnar (Heb. 12:2). Jesús Kristur er einnig höfundur allra vísinda, samkvæmt því sem stendur í Kólossubréfi 2:3: „En í honum (Jesú Kristi) eru allir fjársjóðir spekinnar og þekkingarinnar fólgnir.“
mm Kveðjur og blessunaróskir.“

Ætli guð hafi þá ekki líka hrist jörðina (og sjálfsagt alheiminn allan) fram úr annarri erminni fyrir um fimmþúsund árum síðan.

Mér fallast hendur.

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Af kökubakstri.

Við Kristín erum feikidugleg. Nú þegar búin að baka tvær smákökusortir: mömmukossa og hermanns - mæðrum okkar beggja til ómældrar ánægju. Fyrri tegundina þekkja flestir en þá síðari má finna í kökubók Hagkaupa. Að sjálfsögðu var kryddmagnið í þeirri aukið og súkkulaði bætt í. Og ekki þýðir að slá slöku við enda bíða nú allavega þrjár sotrir til viðbótar lögunar og bökunar og vinnist tími til er aldrei að vita nema soðið verði súkkulaði í nokkra konfektmola.

Ástæða þessarar ótrúlegu fyrirhuggju er tilhlökkun eftir jólunum. Síðastliðin fjögur ár hef ég vart haft tíma til þess að hlakka til jólanna og nú í tóminu eftir vinnu leitar hugurinn að einhverju til að hugsa um og vinna að. Ég vona að við höfum bara ekki byrjað of snemma og fáum ógeð á tilstandinu.

Þá vil ég taka undir með menntamálaráðherra sem sagði það argasta ósið að gefa íslenskum búðum útlenskt nafn. Heyr heyr.