miðvikudagur, júní 28, 2006

Frá Sláturfélagi Suðurlands

Heyrði áðan í útvarpinu eftirfarandi klausu: "Grillkjötið frá SS, þú þekkir það á umbúðunum".

sunnudagur, júní 25, 2006

Af gyðjum og hrottaskap

Örvæntingarfulli uppgjafarsjómaðurinn sem hafnaði sjóferð á dögunum hefur fengið uppreisn æru. Hann fær brátt tækifæri til að anda að sér frískandi úthafsloftinu, lykta af Atlantshafinu, stíga ölduna, segja "harr harr harr" og síðast en ekki síst míga í hafið bláa hafið. Það er mikið atriði...

Fór í sund á dögunum. Ætti eiginlega að fá viðurnefnið Ottó - L(eiðinlegi) eftir þetta. Lögin var full af fólki enda glampandi sól, en ég ætlaði mér sko ekki að liggja í einhverju sólbaði. Greip því á það ráð að draga eina af flotlínunum yfir lögina til að fá minn sundfrið fyrir lítt hrifnum almúganum. Þannig eignaði ég mér tæplega þriðjung laugarinnar. Afar einfalt og áhrifaríkt en ekkert rosalega vinsælt. Ojæja...

Þá fékk ég undir hendurnar nýju Muse-plötuna Black Holes and Revelations. Glöggir hlustendur ættu að veita nýjum tónum athygli. Platan er mun bjartari en Absolution þá stutt sé í dramatíkina hjá Bellamy, sbr. upphafslagið Take A Bow. Þeir eru orðnir dansvænni og ber fyrsta smáskífan Supermassive Black Hole því skýrt vitni. Þeir eru meira fyrir hvurskonar svuntuþeysarahljóð og finnst manni að þeir tónar lyfta plötunni að eins upp og gera hana glaðlegri. Það vottar fyrir ádeilu á valdamestu menn heims og er það vel. Lokalagið Knights of Cydonia er kraftmikill lokahnykkur á þessa ágætu fjórðu plötu Muse. Hér getið þið svo horft á fremur sýrt myndband við hið skemmtilega Supermassive Black Hole. Mæli með því.

þriðjudagur, júní 20, 2006

Harkan sex

Heyrði nýjan iðnaðar- og virkjanaráðherra kynda undir stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum. Betra að fara í bátana, híf'upp fokkuna, stórseglið og allt heila klabbið svona til þess að vera öruggur um að drukkna ekki í öllum þessum tilfæringum.

Vil svo benda áhugasömum á að mjög gaman er að syngja þýska þjóðsönginn: "Deutschland, Deutschland uber Alles" við skólasöng okkar Menntskælingja.

Svo segi ég eins og þessi harði gaur hér: Jæja, fokkinn farinn!

föstudagur, júní 16, 2006

Þann 12. júní síðastliðinn...

Ég er hættur þessum stælum og hef ákveðið að opna vefsetrið á nýjan leik. Tilefnið er ekki af verri endanum, má til með að dásama snilling. Roger Waters er snillingur. Hann er svo mikill snillingur að hann hefði verið brenndur á miðöldum fyrir snilli sína. Þvílíkir tónleikar, það var sko ekkert dósahljóð í þessum græjum. Legg til að allir upplifi a.m.k. eina tónleika með Waters um ævina. Það er mannbætandi.

En talandi um músíkanta. Þó hann standi Roger að baki hvað mikilfengleik varðar er hann ekki síður skemmtilegur. Má ég kynna diskó-funkarann Donald Fagen. Mæli með plötunni The Nightfly. Ákaflega skemmtileg hljómplata. Fagen léttir lund.

Svo hefur atvinnulausi sjóarinn fengið vinnu. Byrja að vinna í Sæplasti á máudag. Gegni afar mikilvægu starfi. Mun sjóða pækilgrindur eða eitthvað í þá veruna. Annars vonast sjóarinn nú eftir því að fá tækifæri til að skvetta úr skinnsokknum í hafið bláa. Því veitir ekki af smá lit.

Þess í millum reyni ég svo að finna mér stað í sveigðu tímarúminu. Uni mér við lestur torskildra eðlisfræða, það er fyrir nördinn í sjálfum mér. Af og til gríp ég svo í hljóðfæri, gítar, saxófón, úkúlele eða bara hef upp raustina og læt tónana flæða, nærstöddum til ómældrar óhamingju...