miðvikudagur, maí 09, 2007

Af næstu dögum, vikum og mánuðum...

Nú er komið að því að útskrifast. Og þá skal maður sannarlega sletta skyrinu sem aldrei fyrr - þó skyráman sé svo gott sem tóm eftir veturinn. Ástæður þessara geigvænlegu fjárútláta sem hlaupa á þúsundum eru margvíslegar. Húfur, Dimmiso-búningar, óvissuferð, gjafir handa kennurum, hátíðarverður að kvöldi þess sautjánda og fleira og fleira. LÍN ætti að veita styrki sérstaklega fyrir þessa síðustu daga stúdentsefna við framhaldsskólana víða um landið. Það er dýrt drottins orðið.

Ennfremur lauk ég fjarnámi frá Verslunarskólanum á dögunum. Það voru hræbillegar níu einingar. Aldrei datt mér í hug að ég myndi einhvern tíman hafa eitthvað við þá stofnun að snælda. Senn líður svo að prófum hér í MA. Fyrsta prófið mitt eftir hérumbil þrjár vikur á skjön við alla aðra. Enda erum við Menntskælingar öfugir hvern við mann.

Þá er ég nánast búinn að losa mig við Carminuna. En ég asnaðist til að taka mér formannssæti í þeirri nefnd. Ég held hún verði bara hreint prýðileg þetta árið.

Eftir útskrift vonast ég eftir plássi á einhverjum Samherjadallinum. Helst alveg fram undir jól. Þá leggjum við Kristín land undir fót und wir wollen nach Deutschland reisen um Deutsch zu lernen. Aukinheldur stefnum við til Rússlands. Frá Moskvu er ætlunin að ferðast með Síberíuhraðlestinni niður til Peking til að skoða heimsveldi 21. aldarinnar. Ég hlakka mikið til.

Ég fékk nýju plötuna Bjarkar í afmælisgjöf. Þar er að finna dálítið pönkaða, dálítið elektróníska og dálítið hugljúfa tónlist. Mæli með Björk.

Annars hygg ég á heimsyfirráð...