Það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Jóni Má um að prófa skyldi allan Menntaskólann. Hann sagði: Verði próf. Og það varð próf.
Að sjálfsögðu gengst ég við þessari tilskikkan yfirvalda og læt prófa mig í flestöllu sem ég hef að einhverju marki stúderað í vetur. Núna er mesti hjallurinn að baki, matematíkin. Það er nú undarleg tík... Tík með heildunum og tilheyrandi innsetningaraðferðum og stofnbrotsliðun, tík með línulegri nálgun, tík með þrepunarsönnun og velröðunarreglu. Virkilega margþætt og skemmtileg tík.
Eftir að hafa rutt þessum prófsteinum úr vegi, en þeir eru þrándur í götu minni nú, ætla ég að þéna dulítið. Skilst að hrognavertíðin sé hafin... Ég mun þá líklega salta hrogn í vetrarfrínu. Hlakka annars mikið til að komast heim, NAD T-753.
Áhugasömum vil ég svo benda á að í kvöld klukkan 20;00 mun MA sigra ML í spurningakeppni framhaldsskólanema. Hægt er að hlýða á ómþýðar raddir bera okkur visku eigendana á Rás 2.
Áhugasömum vil ég ennfremur benda á að kynna sér músíkina úr rokkóperunni Jesus Christ Superstar. En hún er einmitt sisvona líka alveg hreint sérdeilis prýðilegt áhlustunarefni. Ég mæli þó sérstaklega með þeirri útgáfunni þar sem Ian nokkur Gillian ljær Jésúm rödd sína...